Hey
Göltur
29.08.2006 21:46:46 / raggibjo

Where the desert ends.....Tinydancer strike's back.

He's back. They say, is it true......... HELL Yeha Grasið var grænna hinu megin virðist vera, bloggar.is var ekki rétta umhverfið fyrir mig. Enda snérist vera mín þar aldrei um framtíðar blogg skriftir. Hún var meira í áttina að sumarfríi enda hætti ég að blogga hér í byrjun sumars og núna er veturinn að koma og ég er mættur aftur. Ég er auðvitað byrjaður að vinna minni sem þýðir að mér leiðist helmingi meira í staðinn. Alveg stórfurðulegt að vera heima á hverju einasta kvöldi. Jæja dömur mínar og herrar, ég vil bjóða sjálfann mig velkominn aftur til starfa. Og ég veit að það eru ýmsir aðilar "þarna úti" sem að voru að bíða eftir að ég myndi snúa aftur. Pæling að finna svona "Tagline" fyrir mig þar sem ég er að koma með mitt fyrsta "comeback". Hugmyndir eru vel þegnar!

» 0 hafa sagt sína skoðun

27.04.2006 15:35:29 / raggibjo

http://jesus.bloggar.is

Þar sem vegurinn endar tekur eyðimörkin við...... Þessi síða er out. Ble dúds.

» 0 hafa sagt sína skoðun

14.04.2006 16:59:32 / raggibjo

Stop the dams

Ég var að heyra nýja Gorillaz lagið sem að þau gerðu með Ghostdigital. Ég var als ekki fyrir vonbrigðum. Þvílík snilld.

Langaði bara að segja þetta.

» 0 hafa sagt sína skoðun

09.04.2006 02:13:26 / raggibjo

Time out of mind

Ég veit ekki alveg afhverju ég er að birta þetta hérna.... En allavega þetta er ótrúlega fallegur texti eftir Bob Dylan frá árinu 1997.

 Shadows are falling and I've been here all day
It's too hot to sleep time is running away
Feel like my soul has turned into steel
I've still got the scars that the sun didn't heal
There's not even room enough to be anywhere
It's not dark yet, but it's getting there

Well my sense of humanity has gone down the drain
Behind every beautiful thing there's been some kind of pain
She wrote me a letter and she wrote it so kind
She put down in writing what was in her mind
I just don't see why I should even care
It's not dark yet, but it's getting there

Well, I've been to London and I've been to gay Paree
I've followed the river and I got to the sea
I've been down on the bottom of a world full of lies
I ain't looking for nothing in anyone's eyes
Sometimes my burden seems more than I can bear
It's not dark yet, but it's getting there

I was born here and I'll die here against my will
I know it looks like I'm moving, but I'm standing still
Every nerve in my body is so vacant and numb
I can't even remember what it was I came here to get away from
Don't even hear a murmur of a prayer
It's not dark yet, but it's getting there.

Okibæ.


» 1 hafa sagt sína skoðun

07.04.2006 16:24:05 / raggibjo

You ride, We ride, In my ride.

Páskafríið er víst komið. Sem þýðir...... Mikið hangs, mikið tölva, lítið vinna og lítið hreyfa sig. Já og mikið Kók.

Eða hvað... á maður að taka u beygju í lífstíl. Vera geðveikt athletic. Ef að svo verður þá ætla ég allavega ekki byrja fyrr en á morgun og á morgun mun ég ákveða að byrja á hinn. Og þannig gengur þetta í svona 20 ár... þegar maður verður kominn með bumbu. En þá reddar bumbu-baninn þessu. Það er búið að hugsa fyrir öllu fyrir mig.  Spurning  hvort að stéttarfélagið mitt myndi borga fyrir banann.

Þegar þetta páskafrí er búið þá fer ég bara í nokkur próf og svo er sumarið komið. Ætti maður að gera eitthvað í sumar? Skokka hringinn? eða kanski taka rútu? það er örugglega hægt að lenda í mörgu forvitnilegu úti á landsbyggðinni. Ég hef upplifað landsbyggðina á soldið undarlegann hátt. Oftast uppdópaður af sjóveikispillum, hálf rotaður aftaní subaru legacy. Með tvo bræður mér við hlið sem að pota í hvorn annan þangað til að það byrjar að blæða. Svo stoppaði ég stundum einhverstaðar undir einhverri fjallshlíð til að gubba. Það er örugglega út af því sem að mér finnst fjöllin ekkert merkileg.

Bæjó.

» 0 hafa sagt sína skoðun

30.03.2006 02:14:32 / raggibjo

Sit bara við tölvuna og hripa niður orð

Morð? Rýmar við orð. Ég var að pæla í þessu... með morðingja. Þetta snýst örugglega í flestum tilvikum um stundarbrjálæði. Það hlýtur að versta tilfinning í heiminum að hafa drepið einhvern. Látið einhvern hætt að lifa. Það eru til mörg lög um morðingja. Sorglegt. Morðingjar eru ekkert endilega alltaf slæmt fólk, sumir eiga skilið að vera fyrirgefið. Morð af gáleysi, til dæmis. Hvernig er hægt að dæma svona. Ég þoli ekki þennann heim stundum, stjórnvöldin í þessu landi. Ég fæ gubb í hálsinn. Mér líður betur oní skíttnum. Stundum nenni ég ekki að vera partur af Íslandi. Eina sem þetta land snýst um hjá sumu fólki eru bílar og hús.

En ok ég skal sætta mig við þetta......


» 3 hafa sagt sína skoðun

27.03.2006 21:24:03 / raggibjo

Skrýtin pæling.

Segjum sem svo að sígarettur séu ekki til. Heldur eru það pulsur sem að eru ávanabindandi. Já pulsur með nikotíni í. Ætli pulsur séu þá bannaðar innann 18 ára. Það væri subbulega fyndið samt. Gaur kemur inní sjoppu og segir... "Ég ætla að fá einn SS í hörðum". Og meðferðarstofnun fyrir pulsu sjúklinga. Förum ekki nánar út í þetta málefni..

Veriði sæl.

» 2 hafa sagt sína skoðun

18.03.2006 02:39:00 / raggibjo

Út um gluggann.

Hæ Nonni Nonni, sumir fatta. Ok ég er með Violent Femmes æði. Ég elska æði. Ég kynntist Violent Femmes sumarið 2003. Ég man að ég sat í tölvunni og það kom msn skilaboð frá Magga sem stóð í: ble fagmaður spaðason, ertu til í að koma á violent femmes tónleika með mér á Brodway. Ég varð eins og klósettskál í framan því að ég hafði ekki hugmynd um hverjir þessir gaurar voru, núna er árið 2006 og ég hlusta slatti mikið á þessa hljómsveit. Mér finnst þetta samt svo nýlegt, maður er víst að eldast.

Jæja ég er farinn, út um gluggann. Sjáumst.

» 1 hafa sagt sína skoðun

06.03.2006 00:13:50 / raggibjo

Góðann daginn

Hæ amma, eða ég veit nú ekki hvort þú sért að lesa þetta. En maður veit aldrei. ALDREI. Maður veit aldrei neitt. Ég held að sama hvað maður fer í marga skóla og hvað maður tekur marga kúrsa í Háskólanum þá veit maður aldrei neitt fyrr en maður maður hefur reynslu af því.
Og auðvitað getur maður ekki haft reynslu af mörgu. Þannig að maður á aldrei eftir vita nema svona 0,001% af öllu því sem er hægt að vita.
Svo er náttla internetið. Ég held að það sé hægt að finna megnið af allri þekkingu heimsins þar. Þannig að ef að maður hefur tíma og þolinmæði, þá getur maður sest niður við tölvuna og reynt að læra netið utanað. En vá er ég kominn út í rugl eða ég er sko ekkert búinn að segja ykkur frá djammi helgarinnar.

Nei þarna tók ég þig í görnina.
1. Þá var ekkert djamm um helgina.
2. Þá myndi ég aldrei skrifa um það hér
3. Tilgangslaust að setja upp svona tölur ef það er bara 1 og 2 þannig að ég setti 3 líka.

Ég skil ekki hvernig fólk nennir að blaðra um svoleiðis. Eins og einhver fái kikk útúr því að vita hvað einhver allt annar gaur skemmti sér vel um helgina.
En ég er samt ekkert bitur sko, þó svo að það kunni að líta svo út. Bara skoðanir. Skoðanir mynda persónuleika.

Góða nótt.


» 0 hafa sagt sína skoðun

24.02.2006 00:42:35 / raggibjo

The Truth Is Out There

X-Files, já það er rétt, X-Files er byrjað aftur í sjónvarpinu. Ég horfði á einn þátt áðan og mér leið eins og ég væri orðinn þrettán-ára aftur. Ég lá uppí sófa á Smyrlahrauninu með fjarstýringuna í annari og kex í hinni. Góðir tímar, chill tímar. Ég held að ég hafi aldrei slappað jafn mikið af eins og þegar ég var á þessum aldri, ég gerði eiginlega aldrei neitt. Það var á einhvern óútskýranlegann hátt ótrúlega gaman. Ég var sjónvarpsdagskráin, ok ég var hún kanski ekki en ég var svo gott sem. Því að ég það þurfti bara að segja við mig. Hvað er klukkan átta í sjónvarpinu á þriðjudaginn 18 október og ég gat þulið upp allar stöðvarnar. Ég man reyndar ekki hvort skjáreinn var kominn þá. Ef ekki þá var þetta eiginlega bara ein stöð, sem er stöð 2. Því að mér hefur aldrei líkað neitt það vel við Rúv. Þetta er þá kanski ekkert það merkilegt að geta vitað hvað er í sjonvarpinu á einni stöð klukkan átta á þriðjudögum. En kanski er einhver þarna úti sem getur samglaðst.

Ég var að finna mér nýtt áhugamál, þetta er pottþétt áhugamál sem að ekki margir stunda, þetta er: Fjarstýringasöfnun.
Ég er byrjaður að safna fjarstýringum úr öllum áttum, Samsung, Sanyo, Sony, United, nefndu það bara og ég verð tilbúinn að borga þér slatta af pening til að fá hana í safnið.

Nei ég er að rugla.

Ég ruglaðist þarna í smá stund. Veit ekki hvað ég var að pæla. Þetta kom bara. Afsakið, ég veit vel að ég get strokað þetta út. En það er bara eins með þetta eins og margt annað, það er ekki hægt að gleyma því þó svo að maður taki það í burtu. Þá er mikklu betra að leyfa því að vera og læra að lifa með því og fyrirgefa....

.... þennann verðmæta tíma sem ég stal af þér.

Ég var í ritgerðarprófi í dag, ég átti að skrifa um bókina Góðir Íslendingar. Þetta er mjög skemmtileg bók. Góðar, skemmtilegar og fyndnar pælingar í gangi. Ég skýrði ritgerðina "Ísland" vegna þess að bókin fjallar um það er sögumaður keyrir Hringveginn. Ég mæli með þessari bók. Ég myndi samt kaupa hana, ég tók hana á safninu og hún var frekar eydd og blaðsíðurnar í ruglinu. Það er þannig þegar maður les notaða bók manni finnst eins og maður sjálfur hafi verið notaður.

Ég hef ákveðið að meðalvegurinn hentar mér best í lífinu. Hinn gullni eins og sumir myndu segja. Þannig að ef að þú stefnir ekki á hinn "Gullna meðalveg" þá munu leiðir okkar sennilega ekki liggja saman. Sorry rónar og milljónamæringar.

Bless og takk.

» 3 hafa sagt sína skoðun

22.02.2006 18:18:22 / raggibjo

Aim for a smile

Örugglega besta lag sem ég hef heyrt mjög lengi, Aim for a smile, með Slowblow. Þetta er hljómsveit sem Dagur Kári er í. Ég veit nú ekki mikið meira um hana, en allavega þetta lag er á disknum NóiAlbínói sem er að sjálfsögðu tónlistin úr myndinni, sem Dagur gerði einmitt. Ég er búinn að eiga þennann disk mjög lengi en ég hef aldrei hlustað á hann almennilega. Það virkar best að hlusta á tónlistina í myndinni sjálfri, helst vera klæddur í lopapeysu og að drekka malt í gleri (drekkana hér).

Ég horfi alltaf á þessa mynd af og til, svona ef ég hef ekkert að gera. 13 febrúar og ekkert skemmtilegt í sjónvarpinu- þá á ég það til að skella Albínóanum í imbann. Frábær skemmtun og ég held að Elín Hansdóttir sem leikur Írisi, ég held að hún sé næst fallegasta mannveran.

Þetta er samt soldið dæmigerð íslensk mynd, svona alltaf sömu leikarar í aukahlutverkum, en góður er íslenski húmorinn sem prýðir þessa mynd. Ég fýla hann, ég hef alltaf fýlað íslenskar myndir, maður þarf ekki að rembast við að lesa texta eða rembast við að láta hann ekki fari í taugarnar á sér. Ég er ekki svo góður í því.

Hún er líka soldið sorgleg, endirinn er ekki beint sorglegur, þó svo að mörgum finnist það. Mér fannst bærinn og skólinn mun sorglegri, líka amma Nóa. Pabbi hans var náttla bara misheppnaður gaur.

Þetta er nú komið útí rugl hjá mér. Ég er farinn að blasta God save the queen, rífa allt í tættlur og fleira sniðugt.

Ble.

» 1 hafa sagt sína skoðun

20.02.2006 23:12:52 / raggibjo

Jó DOG

Hæ dogs,

Ég nigga þú nigga, we both nigga. You fatt.
Ég(Ragnar Björnsson) var að setja inn diskana mína á www.rateyourmusic.com það er hægt að smella á það hérna til hliðar(vinstri). Ég veit ekki hvort að þetta sé þess virði að kalla plötusafn, en þetta er allt að koma. Margt af þessu er reyndar gamalt drasl. Ég var líka að fatta að ég á mjög mikið af safndiskum sem að ég hlusta aldrei á. Það er súrt.

En nóg af því, núna ætla ég að skrifa um það sem allir vilja vita, sem er: Hvað er að frétta af kjellinum.

Allt gott.

Mér finnst skondið, alltaf þegar fólk spyr hvað segiru gott, eða hvað er að frétta, þá er svarið alltaf allt gott eða allt fínt, eitthvað svona. Skil ekki afhverju fólk er ekki búið að fatta að þetta er tilgangslaust.

Þannig að næst þegar þú hittir mig, segðu þá bara: allt gott, þá segi ég: já, og þá erum við bara búnir/ búin, að ljúka þessu af.

Bæ.

» 0 hafa sagt sína skoðun

14.02.2006 00:29:25 / raggibjo

Pæling 6294

Var að velta einu fyrir mér, Það er hægt að heita Gunnar, og það er hægt að heita Gunni, og það er hægt að heita Binni afhverju er ekki hægt að heita Binnar??????

Kynþáttafordómar.

» 5 hafa sagt sína skoðun

14.02.2006 00:21:46 / raggibjo

Raggi

Megavika megavika mega mega megavika. Jess það er komin megavika, besti tími ársins.
Ég var samt að pæla í einu með þessa Megaviku, þetta er eiginlega orðið eins og jólin eða páskarnir eða eitthvað. Þetta er svona skrýtið tímabil þegar allt er ekki alveg eins og það á að vera. Nema bara þetta er nokkrum sinnum á ári. Mér finnst að það eigi að hafa þetta bara einu sinni á ári og hafa síða Megadag, sem er svona aðal Megaviku-dagurinn. Gæti tildæmis haft þessa viku alltaf í byrjun júní. Hver veit, eftir 2000 ár gæti þetta verið orðið að trúarbragði.

Biðjum til Færeyska Dominoz gaursins sem kom til Íslands og frelsaði okkur frá illum öndum.

Alveg jafn súrt eins og þetta er núna. Pæliði í því.


» 0 hafa sagt sína skoðun

11.02.2006 01:54:36 / raggibjo

(ex = b plús mínús kvarðadrótin af b í öðru mínus 4 sinnum A sinnum C) deilt með 2 sinnum A

Hó hó, Willi er mættur á svæðið, ég var úti áðan að byggja dúfankofa en svo komu strákar og eiðilögðu hann.
ATH. Mjög takmarkaður hópur af fólki hefur vitneskju til að skilja eitthvað í því sem stendur hér fyrir ofan.

Vá maður hvað Hunting for happiness er góður diskur, en hann er með dikta, hlustaðu á hann núna, lesandi góður.

Ég tók líka eftir því áðan að teljarinn á síðunni er farinn yfir 7 þúsund. Ætli eitthvað af þessum 7 þúsund sé sama fólkið? Eða ætli þetta sé allt mismunandi fólk að kíkja á síðuna mína? Það væri nettara ef það væri þannig, þá væri ég svona semi frægur/ þekktur en enginn myndi vita hvað ég heiti. Það væri snilld.

Nota tækifærið og benta þér lesandi góður á reiðasta mann veraldar, en það er Sindri sonur Þórs og Bjarkar. http://www.sindrieldon.blogspot.com
Það er gaman að lesa þetta.

Endum þetta á léttu nótunum,
Ekkert fokking glans, bara venjulegt.

» 5 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 8